Þegar sumri tekur að halla og daginn er farið að stytta að nýjan leik, er alveg tilvalið að bjóða fjölskyldu og vinum í alvöru bröns um helgina.
Bröns er tilvalin leið til að hittast og ræða sumarið, eins og ferðalög og aðra hápunkta um leið og boðið er upp á góðgerðir í mat og frábæra samveru.
Alvöru bröns
Bröns sameinar það besta úr morgunverði og hádegisverði og býður þess vegna upp á marga skemmtilega möguleika og fjölbreyttar útfærslur. Hjá Myllunni er eftirtalið í mesta uppáhaldi eins og er:
Grunnréttir: Síðsumars, þegar haustið er handan hornsins, má segja að beikon og pylsur séu nánast skylduréttir í góðum bröns. Með þeim er afar ljúft að bera fram steikta kartöflubáta eða bakað kartöflusmælki með kryddjurtum og bakaðar baunir. Þá er steikt eða grillað grænmeti eins og paprika, laukur og sveppir fullkomið meðlæti, ásamt hrærðu eggi.
Brauð: Í bröns er brauðið ein skærasta stjarna veisluborðsins. Við mælum með ristuðuðum Samsölu beyglum ásamt góðum og næringarríkum fulltrúa úr Lífskornafjölskyldunni. Þá er Heimilisbrauð Myllunnar ómissandi sem vinsælasta ristaða brauð þjóðarinnar.
Eggjaréttir: Eggjakaka með grænmeti, osti og skinku fellur undir það sem kalla má klassískan rétt á bröns-borðinu. Einnig er hægt að bjóða upp á egg benedict með hollandaisesósu, sem er sannkallaður lúxusréttur, eða dísætt og ómótstæðilegt „French Toast“ (franskt eggjabrauð).
Fersk salöt: Fyrir marga eru ferskir og léttir salatréttir ómissandi, eins og tómatsalat eða grænt salat með fersku grænmeti og léttri dressingu. Gott salat frískar brönsinn upp og gefur borðinu lit.
Eftirréttir: Eftir staðgóðan bröns má segja, að dýrindis sætabrauð sé algjört möst. Tilvalið er að bjóða upp á Myllu smáar kökur, Möndluköku Myllunnar eða einhverja af frábæru Myllu tækifæristertunum.
Það má síðan breyta og bæta endalaust við, eða allt þar til hlaðborðið er orðið eins og þú vilt hafa það. Njóttu þess að bjóða fjölskyldum og vinum um helgina.